Ný dómaranefnd HSÍ

 

Tilurð þessa bloggs er að gera tilraun til að skapa faglega umræðu um dómaramál og koma á framfæri skýringum og hugmyndum okkar sem starfa að þessum málum. 

Ný dómaranefnd hefur tekið til starfa hjá HSÍ.  Hana skipa undirritaður, núverandi Ármenningur en gamall Frammari og UMFA leikmaður, sem er formaður, Ásta Björk Sveinssdóttir, Valsari með meiru, Davíð B. Gíslason, Gróttumaður og fyrrverandi formaður aganefndar og Ólafur Örn Haraldsson, KA maður og fyrrverandi félagi minn í dómgæslu.  Eftir er að skipa í eitt sæti og er það frátekið fyrir konu þegar hún finnst og getur gefið sér tíma til að vera með okkur í virku starfi.

Dómaranefndin er að móta sitt starf fyrir veturinn og vill hún vera sýnileg í starfi og umræðu um dómaramál.  Haustfundur dómara og eftirlitsmanna er um næstu helgi og þar verða lagðar línur fyrir vetrarstarfið.

Innan skamms verður auglýst eftir einstaklingum sem hafa áhuga á dómgæslu og vilja verða dómarar.  Við ætlum að gera allt sem við getum til að fá gott kvendómarapar og hjálpa þeim að verða í fremstu röð dómara. 

Meira síðar.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott hjá þér

Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu hér. Hlakka til

Rafn Sig,- (IP-tala skráð) 3.9.2007 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dómaranefnd HSÍ

Höfundur

Guðjón Leifur Sigurðsson
Guðjón Leifur Sigurðsson
Höfundur er formaður dómaranefndar HSÍ, fyrrverandi dómari eftir 32 ár, þar af 15 ár alþjóðadómari, núverandi eftirlitsmaður HSÍ og EHF, rafmagnsiðnfræðingur með lýsingarhönnun sem sérsvið, giftur síðan 1976, faðir tveggja dætra og afi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þrekpróf 2007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband