Færsluflokkur: Íþróttir

Haustfundur dómara - Próf

Haustfundur dómara og eftirlitsmanna verður haldinn um næstu helgi.  Hér að neðan má sjá dagskrá fundarins.

 Þrekpróf fyrir dómara verður haldið í föstudaginn 7. september kl. 19:00 (mæting 18:45) í Laugardalshöll (gengið inn bakvið nýju höllina).  Hlaupið verður “Cooper test” þar sem hlaupið verður í 12 mín og þurfa allir þátttakendur að ljúka að minnsta kosti 2.400m á þeim tíma.Fundur verður haldinn laugardaginn 8. september í þingsal númer 8 á Hótel Loftleiðum og fundartími verður frá 10:00-15:00 Dagskrá:10:00    Kynning á nýrri dómaranefnd og áherslur í starfi hennar
10:15    Kynning á niðurröðun og eftirliti

10:30    Kynning á nýrri eftirlitsskýrslu EHF
11:15    Skriflegt próf – 30 spurningar

12:00    Matarhlé – Hlaðborð í boði HSÍ

13:00    HDSÍ
13:30    Yfirferð á skriflegu prófi
13:45    Leiðin að alþjóðlegri dómgæslu
14:00    Nýjar áherslur í dómgæslu vetrarins
14:15    Umræður - Pallborð
15:00    Haustfundi lýkur

Ný dómaranefnd HSÍ

 

Tilurð þessa bloggs er að gera tilraun til að skapa faglega umræðu um dómaramál og koma á framfæri skýringum og hugmyndum okkar sem starfa að þessum málum. 

Ný dómaranefnd hefur tekið til starfa hjá HSÍ.  Hana skipa undirritaður, núverandi Ármenningur en gamall Frammari og UMFA leikmaður, sem er formaður, Ásta Björk Sveinssdóttir, Valsari með meiru, Davíð B. Gíslason, Gróttumaður og fyrrverandi formaður aganefndar og Ólafur Örn Haraldsson, KA maður og fyrrverandi félagi minn í dómgæslu.  Eftir er að skipa í eitt sæti og er það frátekið fyrir konu þegar hún finnst og getur gefið sér tíma til að vera með okkur í virku starfi.

Dómaranefndin er að móta sitt starf fyrir veturinn og vill hún vera sýnileg í starfi og umræðu um dómaramál.  Haustfundur dómara og eftirlitsmanna er um næstu helgi og þar verða lagðar línur fyrir vetrarstarfið.

Innan skamms verður auglýst eftir einstaklingum sem hafa áhuga á dómgæslu og vilja verða dómarar.  Við ætlum að gera allt sem við getum til að fá gott kvendómarapar og hjálpa þeim að verða í fremstu röð dómara. 

Meira síðar.


« Fyrri síða

Um bloggið

Dómaranefnd HSÍ

Höfundur

Guðjón Leifur Sigurðsson
Guðjón Leifur Sigurðsson
Höfundur er formaður dómaranefndar HSÍ, fyrrverandi dómari eftir 32 ár, þar af 15 ár alþjóðadómari, núverandi eftirlitsmaður HSÍ og EHF, rafmagnsiðnfræðingur með lýsingarhönnun sem sérsvið, giftur síðan 1976, faðir tveggja dætra og afi.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þrekpróf 2007

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband